Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Emma var valin ásamt Örnu í 18 manna hóp U-17

22. maí 2007 - ÁS skrifar 

U-17 kvk: Arna og Emma aftur valdar

U-17 ára landsliðs kvenna hefur verið að æfa síðustu misseri með stóran æfingahóp. 4 stúlkur frá Akureyri hafa verið að æfa með landsliðsúrvalinu en hópurinn var minnkaður niður í 18 leikmenn í gær. Eftir standa 2 stúlkur frá Akureyri, en þetta eru þær Arna Erlingsdóttir og Emma Havin Sardarsdóttir. Stúlkurnar hittust í Laugum í gærkveldi, þjálfarar eru Guðríður Guðjónsdóttir og Hafdís Guðjónsdóttir.

Heimasíðan óskar þeim Örnu og Emmu hjartanlega til hamingju með að hafa verið valdar í 18 manna hópinn. Þá vill heimasíðan einnig óska þeim Köru Árnadóttur og Unni Ómarsdóttur til hamingju með að hafa verið í úrvalinu en því miður voru þær ekki valdar í 18 manna hópinn að þessu sinni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson