 Hvernig mun Sveinbirni ganga í Noregi?

| | 25. maí 2007 - ÁS skrifar
Sveinbjörn farinn til Noregs, fyrstu leikir á morgunSveinbjörn Pétursson markvörðurinn knái í Akureyri Handboltafélagi var á dögunum valinn í U-19 ára landslið Íslands. Liðið fór í gær út til Noregs þar sem það mun taka þátt í Norðurlandamóti. Mótið hefst í dag með leik milli Norðmanna og Finna og einnig með leik Svía og Dana. Íslenska liðið hefur leik á morgun með því að leika við Finna og seinna um daginn leikur Ísland við Norðmenn. Þjálfari liðsins er Heimir Ríkarðsson, leikjaplan mótsins er eftirfarandi (þetta er íslenskur tími):
Föstudagur Noregur - Finnland (kl. 15:00) Svíþjóð - Danmörk (kl. 17:00)
Laugardagur Finnland - Ísland (kl. 10:00) Svíþjóð - Noregur (kl. 12:00) Danmörk - Finnland (kl. 14:00) Ísland - Noregur (kl. 16:00)
Sunnudagur Ísland - Danmörk (kl. 8:00) Finnland - Svíþjóð (kl. 10:00) Noregur - Danmörk (12:00) Svíþjóð - Ísland (14:00)
Ég bendi aftur á að þetta er íslenskur tími sem er hér gefinn upp. Heimasíðan óskar Sveinbirni og liðsfélögum hans góðs gengis á Norðurlandamótinu. Heimasíðan mun koma með fréttir af gengi liðsins eins fljótt og unnt er. |