Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Aigars í nýju hlutverki í boltanum

7. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifar

Aigars Lazdins gegn Stjörnunni!

Stjarnan úr Garðabæ leikur í kvöld og á morgun gegn Tenax Dobele í Evrópukeppni bikarhafa í Lettlandi. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað þjálfari Dobele er enginn annar en Aigars okkar Lazdins, sem lék með Þór í nokkur ár og með liði Akureyrar í fyrravetur. Aigars ætti því að þekkja andstæðingana út og inn. Stjarnan sigraði í Meistarakeppni HSÍ á dögunum og lagði Akureyri í úrslitaleik Opna Reykjavíkurmótsins um síðustu helgi. Það verður því spennandi að sjá hvort Aggi á lumar á einhverjum göldrum til þess að leggja Garðæingana ytra.

Hér er hægt að skoða viðtal við Aigars eftir síðasta leik hans með Akureyri í vor.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson