 Kaffi Akureyrar mótinu lokið
| | 9. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifarFH-ingar sigruðu á Kaffi Akureyrar mótinuLið FH sigraði í Kaffi Akureyrar mótinu, sem lauk síðdegis í gær. FH-ingar fengu 5 stig, eins og Akureyri 1, en markatala Hafnfirðinganna var hagstæðari og þeir fögnuðu því sigri.
FH og Akureyri 1 sigruðu bæði lið hitt Akureyrarliðið og ÍR, en þegar upp var staðið var það okkar mönnum í liði 1 dýrkeypt að láta Aron Pálmarsson jafna viðureign liðanna, 27:27, með marki beint úr aukakasti eftir að leiktíminn var útrunninn.
Akureyri 1 og Akureyri 2 mættust í fyrsta leik mótsins á föstudaginn og hafði eldra liðið mikla yfirburði, vann 37:15. FH-ingar sigruðu þá ÍR-inga.
Í fyrsta leik laugardagsins mættust Akureyri 1 og FH og var þar um jafnan leik að ræða. Okkar menn voru oftast yfir en þegar langt var liðið á leikinn komust FH-ingar þrisvar einu marki yfir. En í lokin höfðu heimamenn leikinn í hendi sér, en gestirnir jöfnuðu beint úr aukakasti eftir leikinn. Það var klaufalegt hjá varnarmönnum og markverði okkar - og skipti sköpum þegar upp var staðið.
Í síðustu umferð mótsins burstuðu FH-ingar svo yngra Akureyrar með 19 marka mun. Strákarnir okkar stóðu sig reyndar bærilega framan af og þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum var munurinn aðeins 2 mörk, en þá settu FH-ingarnir alla sína sterkustu menn inná aftur, sóknarleikur strákanna varð ráðvilltur gegn sterkum varnarleik og gestirnir úr Hafnarfirði kaffærðu þá með hraðaupphlaupum. Sá mikli munur koma FH-ingum til góða þegar lagt var saman í lokin vegna þess að Akureyrarlið 1 sigraði ÍR aðeins með einu marki.
Úrslit leikja í karlakeppninni:
| Akureyri 1 - Akureyri 2 | 37:15 | | FH - ÍR | 32:26 | | Akureyri 1 - FH | 27:27 | | ÍR - Akureyri 2 | 32:27 | | FH - Akureyri 2 | 37:18 | | Akureyri 1 - ÍR | 25:24 |
Lokastaðan:| FH | 3 | 2 | 1 | 0 | + 25 | 5 | | Akureyri 1 | 3 | 2 | 1 | 0 | + 18 | 5 | | ÍR | 3 | 1 | 0 | 2 | - 2 | 2 | | Akureyr1 2 | 3 | 0 | 0 | 3 | - 41 | 0 |
|