Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Rúnar þarf að herða á sínum mönnum í vikunni

9. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifar

"Ekki nógu gott"

"Þetta var ekki nógu gott hjá okkur. Við þurfum greinilega að nota síðustu vikuna fyrir Íslandsmótið mjög vel ef ekki á illa að fara í fyrsta leiknum," sagði Rúnar Sigtryggsson annar þjálfara Akureyrarliðsins í samtali við heimasíðuna. Rúnar stjórnaði Akureyri 1 á mótinu og Sævar Árnason liði Akureyrar 2.

Rúnar minnti á að liðinu hefði gengið vel á Opna Reykjavíkurmótinu á dögunum, þar sem það varð í öðru sæti en nú hefði annað verið upp á teningnum. "Auðvitað gekk sumt ágætlega í þessu móti, við sköpuðum okkur mikið af færum og stundum var ágætis flot á sóknarleiknum - en í heildina var þetta alls ekkert til að hrópa húrra fyrir."
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson