 Þá er bara að æfa sig í þýskunni
| | 18. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifarÞýskir leikir í beinni á NetinuÁhugamenn um þýska handboltann, sem eflaust eru fjöldamargir bæði á Akureyri og annars staðar, geta nú fylgst betur með en áður - og m.a. gerst áskrifendur að sjónvarpsstöð sem sendir handboltaleiki líka út á Netinu og er hægt að horfa þá bæði í beinni útsendingu og líka síðar.
Til þess að gerast áskrifandi þarf að skrá á netslóðinni www.sportdigital.tv en þetta er áskriftarsjónvarpsstöð sem sendir líka út á Netinu. Stöðin sýnir yfir 150 leiki beint á hverju tímabili og þá leiki er einnig hægt að horfa á síðar, það er að segja ekki í beinni. Hægt er að kaupa alla leikina á tímabilinu á um 5.000 krónur, einnig er hægt að kaupa einn leik í einu, en stakur leikur kostar um það bil 270 krónur. Næstu leikir sem þeir sýna í beinni eru; athugið að tímasetningar miðast við íslenskan tíma - fyrsti leikurinn er í 2. umferð bikarkeppninnar, allir hinir í 1. deildinni:
Á morgun, 19. sept. kl. 18.05 HBW Balingen Weilstetten - Frisch Auf Göppingen (Landsliðsmaðurinn Jalesky Garcia leikur með Göppingen)
Á föstudaginn, 21. sept. kl. 17.20 HSG Wetzlar - TuS N-Lübbecke
(Birkir Ívar Guðmundsson landsliðsmarkvörður er með Lübbecke sem og hornamaðurinn Þórir Ólafsson)
Á laugardag, 22. sept., verða svo fjórir leikir í boði:- TSV GWD Minden - HSV Hamburg
(Einar Örn Jónsson fyrrverandi landsliðsmaður leikur með Minden) - SC Magdeburg - Füchse Berlin
(Andrius Stelmokas, fyrrverandi leikmaður KA og Þórs, leikur með Berlínarliðinu) - SG Flensburg-Handewitt - THW Kiel
(Með Flensburg leika tveir íslenskir landsliðsmenn Einar Hólmgeirsson og Alexander Peterson) - Rhein Neckar Löwen - TBV Lemgo
(Landsliðsmaðurinn Logi Geirsson leikur með Lemgo)
|