 Leikurinn gegn Fram er á laugardaginn kl. 16:00
| | 21. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifarHraðinn í fyrirrúmi hjá FramFyrsti heimaleikur Akureyrarliðsins í karlaflokki verður á morgun þegar Framarar koma í heimsókn. Þeir bláu og hvítu úr Reykjavík gerðu góða ferð til Vestmannaeyja í fyrstu umferð N1 deildarinnar um síðustu helgi og sóttu þangað tvö stig gegn nýliðum ÍBV, 32:29. Þeir þurftu þó að hafa mikið fyrir sigrinum gegn ungu og baráttuglöðu liði ÍBV.
Andri Berg Haraldsson, stórskytta Framara og þeirra besti maður í Eyjum, var að vonum ánægður eftir þennan mikla baráttuleik og sagði í Morgunblaðinu: "Það er alltaf gott að vinna hér í Eyjum."
Samkvæmt frásögn Morgunblaðsins beittu Framarar hröðum sóknum í miklum mæli, eftir að Eyjamenn höfðu skorað og náðu ansi oft að svara með marki. "Það var svo sem ekki lagt sérstaklega upp með þetta en við beitum þessu - þetta eru ódýr mörk, við höfum fljóta leikmenn og um að gera að nýta sér það," sagði Andri Berg í Mogganum.
Andri Berg fór á kostum í Framliðinu og ljóst að Akureyringar þurfa að hafa á honum góðar gætur. Hann gerði 9 mörk gegn ÍBV, þar af eitt úr víti. Línumaðurinn Haraldur Þorvarðarson gerði 5 mörk og er jafnan skeinuhættur. Hornamaðurinn Guðjón Drengsson gerði 4 mörk og örvhenta skyttan öfluga, Jóhann Gunnar Einarsson, gerði einnig 4
Markverðir Framara náðu sér ekki sérlega vel á strik í Eyjum, landsliðsmaðurinn Björgvin Páll Gústafsson varði 6 skot og Magnús Gunnar Erlendsson 11. Eins og handboltamenn þekkja er þó ekki góðu að búast þegar Björgvin Páll hrekkur í gang.
Vert er að rifja það upp að í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna fyrir keppnistímabiliðl var Frömrum spáð 5. sæti, aðeins tveimur atkvæðum á eftir HK og Haukum, sem urðu jöfn í 3.-4. sæti í spánni. Akureyrarliðinu var spáð 6. sæti. |