 Alvarleg tíðindi fyrir íslenskan handbolta
| | 22. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifarGuðjón Valur fór úr axlarlið!Heimasíðan var að fá þær fréttir núna rétt í þessu að Guðjón Valur Sigurðsson hefði orðið fyrir því áfalli að fara úr axlarlið strax á annarri mínútu í leik Gummesbach og Balingen í dag. Læknir liðsins kippti Guðjóni aftur í liðinn en hann kom þó ekki meira við sögu í leiknum, en sat á bekknum og hvatti sína menn áfram, sem unnu leikinn 35:28. Ekki er vitað á þessu stundu hversu alvarlegt málið er eða hversu lengi Guðjón verður frá æfingum og keppni. En að sjálfsögðu sendum við Guðjóni bestu kveðjur að norðan og óskum honum góðs bata.
Hægt er að rifja upp þýskukunnáttuna og lesa umfjöllun um leikinn á heimasíðu Gummersbach hér. |