Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jonni var fluttur á Heilsugæsluna í Eyjum strax í upphafi leiks

31. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Níu marka sigur í Vestmannaeyjum

Rétt í þessu var að ljúka leik ÍBV og Akureyrar sem leikinn var í Eyjum. Er skemmst frá því að segja að Akureyri sigraði með níu marka mun, 35 - 26. Akureyri leiddi með tveim mörkum í hálfleik en gerði út um leikinn með góðum seinni hálfleik þar sem munurinn varð mest tíu mörk.

Strax í upphafi leiksins hneig Jónatan Magnússon niður og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilsugæsluna í Vestmannaeyjum til aðhlynningar. Nú þegar þetta er ritað höfum við ekki nánari upplýsingar um ástand Jonna en vonumst til að geta flutt fréttir af því fljótlega og vonandi nánari upplýsingar um leikinn sjálfan.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson