 Ásbjörn var í miklum ham og skoraði 10 mörk í kvöld

| | 6. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur karla kominn áfram í bikarnumÍ kvöld tók 2. flokkur á móti sterku liði FH í bikarkeppninni og fór leikurinn fram í Íþróttahúsi Síðuskóla. Það var vitað að lið FH er firnasterkt og því ekki laust við að spenna væri í loftinu þegar leikurinn hófst.
FH-ingar reyndust sterkari aðilinn í upphafi, komust í 0-2 og voru ávallt tvem til þrem mörkum yfir allt þar til í stöðunni 9-11. Þó tóku okkar drengir sig til og skoruðu næstu fimm mörk og breyttu stöðunni með frábærum leik í 14-11. FH ingar virtust ekki eiga nein svör við stórleik strákanna sem héldu uppteknum hætti og í hálfleik var staðan 18-13.
Í síðari hálfleik héldu yfirburðir strákanna áfram og var forystan lengst af átta til níu mörk, allt þar til í stöðunni 30-22. Þá gripu FH ingar til þess ráðs að taka tvo leikmenn, Ásbörn og Hákon úr umferð en þeir höfðu verið mjög drjúgir í markaskoruninni, við þetta riðlaðist sóknarleikurinn og söxuðu FH ingar jafnt og þétt á forskotið allt niður í 34-32 og leikurinn allt í einu orðinn spennandi en strákarnir gerðu engin mistök á lokamínútunum og skoruðu tvö síðustu mörk leiksins sem endaði með góðum sigri 36-32.
Eftir að hafa hrist af sér byrjunarslenið léku strákarnir stórgóðan handbolta og verður gaman að fylgjast með liðinu í vetur en það á greinilega alla möguleika á að berjast um þá titla sem eru í boði.
Mörkin dreifðust þannig: Ásbjörn 10 (3 víti), Hákon 7, Heiðar Þór og Jón Þór 6 mörk hvor, Ágúst 3, Arnar 2, Eiríkur og Valdimar 1 mark hvor.
Markvarsla: Arnar stóð í markinu fyrri hálfleikinn og svo lokamínútur leiksins, hann var seinn í gang en stóð sig fínt eftir það og varði alls 15 skot í leiknum. Sveinbjörn var í markinu lengst af í síðari hálfleik en náði sér ekki alveg á strik en varði fimm bolta.
Það er því bjart framundan og ástæða til að óska strákunum og þjálfurum þeirra til hamingju með frammistöðuna. |