Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Andri mun veita Jóa Bjarna hjálparhönd í leiknum gegn Val

16. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Andri Snær aðstoðar Jóhannes

Á laugardaginn tekur kvennalið Akureyrar á móti sterku liði Vals í N1 Deild kvenna. Annar þjálfari liðsins hann Jónatan Þór Magnússon verður hinsvegar fjarri góðu gamni enda fékk hann rautt spjald í síðasta leik. Í hans stað hefur verið leitað til Andra Snæs Stefánssonar. Heimasíðan hitti Andra Snæ en hann var afar stuttorður í samtalinu en hafði þó þetta að segja um málið:

"Ég ætla mér að halda dampnum hans Jonna, en mér skilst að hann sé að meðaltali með spjald í leik."

Það verður gaman að sjá hvernig leikurinn þróast á morgun hjá stelpunum en hann hefst klukkan 16:00 í KA-Heimilinu. Heimasíðan hvetur að sjálfsögðu alla til að mæta enda er ávallt frítt á leiki kvennaliðsins. Liðið hefur verið að bæta sig í undanförnum leikjum og aldrei að vita nema fyrstu stig vetrarins komi í hús um helgina.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson