Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

HSÍ tók þá ákvörðun að fresta leiknum við Val

29. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Nýustu fréttir: Leik Akureyrar og Vals FRESTAÐ til miðvikudags

Þau tíðindi voru að berast frá HSÍ að leik Akureyrar og Vals í N1-deildinni sem vera átti í kvöld klukkan 20:00 sé frestað til miðvikudagsins 5. desember. Ástæðan mun vera að vegna ókyrrðar í lofti hafi flugáætlanir farið úr skorðum og því komist Valsmenn ekki norður.

Í tilkynningu frá HSÍ segir:
Frestanir
Vegna ófærðar um allt land hefur leikjum Akureyrar og Vals annars vegar og leik HK og ÍBV hins vegar í N1 deild karla verið frestað.

Leikur HK og ÍBV mun fara fram á morgun, föstudag, kl.19:30 í Digranesi.

Leikur Akureyrar og Vals mun fara fram miðvikudaginn 5.desember kl.19.00 á Akureyri.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson