 Nú þurfa menn heldur betur að æfa sig í norskunni




| | 24. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarKarlalið Akureyrar í æfingaferð til NoregsLeikmenn karlaliðs Akureyrar Handboltafélags héldu í gærmorgun til Noregs í æfingaferð. Þeir heimsækja lið Elverum sem Axel Stefánsson þjálfar og Samúel Ívar Árnason leikur með. Akureyri fór með mannskap í tvö lið og verða til að byrja með leiknir æfingaleikir við heimamenn en síðan tekur liðið þátt í norrænu móti, Nordic Club Open. Þar mætast norska heimaliðið Elverum, Akureyri Handboltafélag og sænska úrvalsdeildarliðið GUIF. En þetta er kærkomið æfingamót fyrir öll liðin þar sem hlé er á öllum deildarkeppnum vegna EM. Í lok ferðarinnar fara strákarnir okkar á úrslitaleiki EM á sunnudaginn. Strákarnir kosta þessa ferð sjálfir og hafa m.a. aflað fjár með rækjusölu síðustu vikur.
Annars er dagskrá ferðarinnar sem hér segir.
Miðvikudagur 23. janúar Flogið til Noregs eldsnemma um morguninn lent kl. 11:05 að staðartíma. Komið til Elverum kl. 14:30. Um kvöldið eru æfingaleikir, fyrst leika A lið Akureyrar við A lið Elverum og strax á eftir leika B lið sömu félaga.
Fimmtudagur 24. janúar Morgunæfing kl. 10:15-12:00 í Elverum höllinni. Síðar leika B liðin og A liðin opinbera æfingaleiki. B liðin hefja sinn leik klukkan 16:30 og síðan klukkan 18:30 leika A liðin.
Föstudagur 25. janúar Morgunæfing kl. 10:00-12:00 í Herneshallen. Seinna um daginn hefst þriggja liða mót, Nordic Club Open. Inn á milli verður leikur 16 ára liðs heimamanna gegn Gjövik/Vardal. Þá verður aukaleikur þar sem lið Elverum leikur gegn liðinu Taigen sem er stuðningsmannaklúbbur liðsins. Samkvæmt heimasíðu Elverum verður það stórleikur (STORKAMP!!!). Klukkan 16:30 Elverum – Akureyri Klukkan 17:30 Elverum – GUIF Klukkan 18:30 Gutter 16 Elverum – Gjövik/Vardal (yngri flokkaleikur) Klukkan 19:30 Akureyri – GUIF Klukkan 20:30 Elverum – Taigen (sem er stuðningsmannaklúbbur Elverum) Klukkan 21:30 Pizzuveisla fyrir öll liðin
Laugardagur 26. janúar Önnur umferð í Nordic Club Open mótinu. Klukkan 9:00 Elverum – GUIF Klukkan 10:00 Elverum – Akureyri Klukkan 11:00 GUIF – Akureyri Afslöppun og notalegheit seinni part dagsins
Sunnudagur 27. janúar Lokadagur EM farið á úrslitaleikina um 7. 3. og 1. sæti
Mánudagur 28. janúar Heimferð. Lagt verður af stað frá Elverum klukkan 10:15 og ekki stoppað fyrr en komið verður heim til Akureyrar.
Við munum reyna að flytja fréttir af Noregsferðinni á næstu dögum eftir því sem þær berast. |