 Það gekk vel hjá strákunum í gær

| | 24. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarFréttir frá NoregiStrákarnir voru að senda okkur pistil um fyrstu kynnin af Noregi sem fer hér á eftir.
Við erum búnir að koma okkur ágætlega fyrir hér í Noregi eftir langt og strangt ferðalag þar sem lítið sem ekkert var sofið. Þegar við lentum í Osló í gærmorgun tók Axel Stefánsson á móti okkur og við vorum keyrðir í ca einn og hálfan tíma til Elverum. Við gistum hins vegar ekki beint í Elverum, heldur rétt fyrir utan bæinn, í kofum út í skógi. Þetta er alveg hreint magnað að vera hérna, við höfum allt til alls í kofunum og meðal annars internet samband. Það er mjög kalt hérna og mikill snjór og okkur er sagt að úlfar og birnir eru í þessum skógi, merkilegt það.
Í gær spiluðum við tvo æfingaleiki við Elverum. Fyrst spiluðu þeir sem eru í öðrum flokki hjá okkur við annan flokkinn hjá þeim og gekk það fínt, örugur sigur okkar manna en reyndar var þetta mjög frjálslegur æfingaleikur, engir búningar eða alvöru dómarar. Síðan spilaði aðallið okkar við aðallið Elverum og var sama upp á teningnum hjá okkur, mjög frjálslegt og engin talning á töflunni eða neitt þannig. Við spiluðum mjög vel og skildist mér að við höfðum unnið þann leik með ca þremur mörkum, en eins og áður segir var þetta allt mjög frjálslegt og leikið í æfingatímanum þeirra.
Í morgun tókum við svo létta morgunæfingu en núna á eftir eru alvöru leikir við þessi sömu lið, búningar, alvöru dómarar, áhorfendur og fleira. Það verður afar gaman að því. Biðjum að heilsa heim. |