Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það munaði ekki miklu að stelpurnar færu alla leið í bikarnum

28. febrúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Unglingaflokkur kvenna úr leik í bikarnum

Unglingaflokkur kvenna lék í dag gegn Fram um hvort liðið færi í úrslitaleikinn í bikarkeppninni. Leikið var í Framhúsinu og fóru leikar svo að Fram stúlkur fóru með tveggja marka sigur 32-30 þannig að okkar stúlkur voru grátlega nærri því að komast í stóra leikinn.

Framstelpur náðu fljótlega forystu í leiknum en Akureyrarstelpur voru allan tímann inni í leiknum án þess að ná þó að jafna leikinn. Þegar skammt var til leiksloka hafði Fram náð fimm marka forskoti en þá skoruðu okkar stelpur þrjú mörk í röð og leikurinn orðinn hörkuspennandi. Það fór þó þannig að lokum að Fram hélt þessari forystu til loka og unnu eins og áður segir 32-30.


Unnur brýst í gegnum Fram vörnina og skorar
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson