Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Vörnin verður vonandi í góðu lagi í leik dagsins

8. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Meistarafl. karla - Valur Akueyri - Bein lýsing

Í dag klukkan 18:15 mæta strákarnir í meistaraflokki Íslandsmeisturum Vals í N1 deildinni og fer leikurinn fram í Vodafonehöllinni. Það er skarð fyrir skildi hjá okkar mönnum þar sem Einar Logi Friðjónsson og Nikolaj Jankovic taka báðir út leikbann og verða því fjarri góðu gamni. Sömuleiðis eru ákveðin vandræði með vinstra hornið þar sem Heiðar Þór Aðalsteinsson er ekki leikhæfur vegna handarbrots og Andri Snær er ekki orðinn heill eftir rifbeinsbrot. Það kemur í ljós í dag hvernig úr því rætist.

Okkar maður verður á staðnum og því munum við geta boðið upp á beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni. Að sjálfsögðu hvetjum við alla velunnara liðsins stadda á höfuðborgarsvæðinum til að mæta og hvetja strákana en við sem heima sitjum getum fylgst með lýsingunni hér á síðunni.

Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 18:15 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson