Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Andri er að endurheimta fyrri styrk

5. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Karlaliðið heimsækir Fram í dag

Meistaraflokkur karla leikur gegn Fram á heimavelli þeirra bláklæddu í dag klukkan 15:00. Liðin hafa mæst fjórum sinnum í vetur, þrisvar í N1 deildinni og einu sinni í bikarkeppninni. Í öll skiptin hefur Fram farið með sigur af hólmi og því er það alveg ljóst að okkar menn ætla að kvitta fyrir þá leiki í dag.

Lið Akureyrar virðist vera komið í nokkuð góðan gír eftir þrjá sigurleiki í röð og vonandi ná þeir að halda þeirri stemmingu í dag. Fram tapaði reyndar illa síðasta heimaleik sínum gegn ÍBV og viðbúið að þeir þurfi að sýna sínum stuðningsmönnum hvað í þá er spunnið.

Í liði Akureyrar verður Nikolaj Jankovic í leikbanni eftir rautt spjald í síðasta leik en hins vegar er Heiðar Aðalsteinsson kominn í hópinn á ný eftir meiðsli.

Á þessari stundu er ekki öruggt að okkur takist að halda úti beinni lýsingu frá leiknum en það skýrist fljótlega og verður auglýst hér á síðunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson