Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Auður átti góðan leik um helgina

6. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stjarnan sigraði kvennaleikinn

Stelpurnar léku í Garðabænum á laugardaginn en tókst ekki að stríða Stjörnustelpum neitt að ráði. Fyrri hálfleikur var afleitur og yfirburðir Stjörnunnar algjörir svo sem hálfleikstölurnar 23-5 sýna. Í síðari hálfleik var hinsvegar jafnræði með liðunum og skoruðu bæði lið þrettán mörk þannig að lokatölur urðu 36-18 fyrir Stjörnuna. Það verður að viðurkennast að lið Stjörnunnar hafði yfirburði á flestum stigum að þessu sinni.

Mörk Akureyrar skoruðu: Inga Dís Sigurðardóttir 5, Auður Ómarsdóttir 4, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Anna Teresa Morales 2, Jóhanna Kolbrún Tryggvadóttir 2, Unnur Ómarsdóttir 2 og Arna Valgerður Erlingsdóttir 1.

Í markinu varði Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir 5 skot og Emilía Dögg Sigmarsdóttir 2.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson