 Einar í kynþokkafullri sveiflu
| | 7. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarEinar Logi valinn kynþokkafyllsta hægri skyttanFréttablaðið greindi í gær frá niðurstöðum kosningar þar sem leikmenn N1-deildarinnar völdu kynþokkafyllstu leikmenn í hverri stöðu. Þar er skemmst frá því að segja að Einar Logi Friðjónsson, leikmaður Akureyrar var valinn kynþokkafyllsta hægri skytta deildarinnar. Einar Logi er að sjálfsögðu vel að þessum titli kominn og má telja það næsta víst að aðsókn á heimaleiki Akureyrar muni stóraukast á næstunni. Um næstu helgi gefst gullið tækifæri til að sjá verðlaunaskyttuna þegar Akureyri mætir HK í KA-heimilinu sunnudaginn 13. apríl klukkan 16:00.
Þess má geta að Akureyrskir handboltamenn voru áberandi meðal sigurvegaranna, þannig var Heimir Örn Árnason valinn kynþokkafyllsti miðjumaðurinn og Baldvin Þorsteinsson vinstri hornamaður og jafnframt valinn kynþokkafyllsti leikamaður deildarinnar í heild. |