 Úrslitakeppnin er að byrja hjá Köru og félögum
| | 17. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarUnglingaflokkur kvenna: Leikur á föstudaginn gegn ÍBVÁ morgun, föstudag leikur unglingaflokkur kvenna fyrsta leik sinn í úrslitakeppni Íslandsmótsins þegar liðið tekur á móti Eyjastelpum úr ÍBV. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og fer fram í KA heimilinu. Liðin hafa mæst þrisvar í deildinni og hefur Akureyri unnið alla leikina til þessa, þau úrslit hafa þó enga þýðingu í leiknum á morgun og ljóst að Akureyrarstelpur verða að berjast fyrir sigri og komast þannig í 4 liða úrslitin.
Við hvetjum alla áhugasama til að mæta á leikinn og styðja stelpurnar í baráttunni því þær hafa alla burði til að fara alla leið í mótinu en það þýðir að það má ekkert slaka á. |