Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Stelpurnar ætla sér örugglega að fá stig úr leiknum

17. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Meistaraflokkur kvenna: Heimaleikur gegn HK á laugardag

Á laugardaginn leikur meistaraflokkur kvenna næstsíðasta heimaleik sinn á tímabilinu þegar HK kemur í heimsókn. HK situr sem stendur í sjötta sæti deildarinnar og á enga möguleika á að klifra ofar í deildinni og hafa því ef til vill ekki að miklu að keppa. Akureyri á hinsvegar enn eftir að krækja í stig í deildinni og miðað við þá leiki sem liðið á eftir er þessi leikur ef til vill sá vænlegasti til að taka stigin.

Við hvetjum fólk því til að koma í KA heimilið klukkan 14:00 á laugardaginn og styðja nú hraustlega við bakið á liðinu, oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson