 Skyldi Ómar vera að pælaí úrklippumöppunni?



| | 21. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarSkemmtilegt framtak – Úrklippumöppur AkureyrarÓmari Guðmundssyni, sem hefur sinnt sjúkraþjálfun á heimaleikjum karlaliðs Akureyrar á þessu ári, er ýmislegt til lista lagt. Ekki nóg með að hann sinni leikmönnum í kringum leikina, aðstoði þá í meiðslum sínum heldur hefur hann sett upp myndarlegar úrklippumöppur fyrir leiktímabilið í fyrra og einnig í vetur.
Í möppunum er að finna umfjallanir um leiki karla- og kvennaliðanna úr öllum prentmiðlum svo og efni af heimasíðunni. Að sjálfsögðu prýðir fjöldi ljósmynda möppurnar en þær má flestar rekja til Þóris Tryggvasonar, hirðljósmyndara okkar. Um leið og við þökkum Ómari fyrir þetta frábæra framtak bendum við á að möppurnar munu væntanlega liggja frammi til skoðunar á síðasta heimaleik Akureyrar sem verður gegn ÍBV þann 4. maí næstkomandi.
Í leiðinni birtum við hér nokkrar myndir sem Þórir sendi okkur eftir Valsleikinn á laugardaginn en þær munu væntanlega rata í möppuna góðu.
 |