Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Síðasti leikur tímabilsins hjá unglingaflokki kvenna

23. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Unglingafl. kvenna: Leikur um 3. sæti á fimmtudag

Á morgun, fimmtudag leikur unglingaflokkur kvenna gegn Fram um 3. sætið í Íslandsmótinu. Stelpurnar spiluðu í dag við Stjörnuna í 4-liða úrslitunum og var það hörkuleikur sem endaði með sigri Stjörnunnar 22-19.

Fyrir vikið spila stelpurnar um 3. sætið og verður leikurinn eins og áður segir á morgun, leikið verður í Vodafone Höllinni og hefst leikurinn klukkan 14.00. Síðast þegar liðin mættust sigraði Akureyri 25-21 þannig að það getur allt gerst í þessum leik.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson