Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Komast Arnar og félagar í undanúrslit?

26. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur karla gegn Haukum í 8-liða úrslitum

Á mánudaginn mun 2. flokkur karla hjá Akureyri Handboltafélagi leika afar þýðingarmikinn leik. Leikið verður gegn Haukum í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Strákarnir í 2. flokk hafa sýnt það í vetur að þeir eru með hörkulið en liðið komst í úrslit Bikarkeppninnar og endaði í öðru sæti í Norður Riðli í deildarkeppninni.

Allir eru eindregið hvattir til að mæta í Síðuskóla klukkan 17:45 og sjá síðasta heimaleik strákanna í vetur. Ljóst er að leikurinn verður hörkuspennandi og Akureyri þarf allan stuðning sem í boði er til að komast í undanúrslitin.

2. flokkur karla: Akureyri - Haukar, 28. apríl Síðuskóli klukkan 17:45
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson