Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Auður lét að sér kveða og skoraði 10 mörk gegn Fylki

28. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Batamerki hjá kvennaliðinu gegn Fylki

Á laugardaginn mættust Fylkir og Akureyri í N1 deild kvenna. Leikurinn fór fram í Fylkishöllinni og höfðu heimastúlkur undirtökin í fyrri hálfleik og leiddu með fjórum mörkum 18-14 í hálfleik. Oft hefur það gerst í vetur að seinni hálfleikur hefur reynst Akureyrarstúlkum erfiður en að þessu sinni létu þær það ekki henda sig og unnu síðari hálfleikinn með einu marki sem dugði þó ekki til sigurs í leiknum en lokatölur urðu 32-29.

Auður Ómarsdóttir fór mikinn í leiknum og skoraði 10 mörk, Lilja Sif skoraði 6 mörk, Arna Valgerður og Jóhanna 5 mörk hvor, Þórsteina 2 og Ester 1. Í markinu varði Emelía 3 skot og Lovísa 5 skot.

Síðasti leikur liðsins verður svo laugardaginn 3. maí í KA heimilinu en þá taka stelpurnar á móti Gróttu og hefst sá leikur klukkan 16:00.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson