Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Slæm byrjun kostaði Gústa og félaga gullið

2. maí 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur karla: Silfur á Íslandsmótinu

Eftir góðan sigur á FH í undanúrslitum náðu Akureyrarstrákar sér ekki á strik í úrslitaleiknum sjálfum sem var gegn HK. Byrjunin var afleit og náði HK góðri forystu, 10-3 í upphafi leiks og létu hana aldrei af hendi. Í hálfleik leiddu þeir 14-8. Akureyri náði að saxa á forskotið í síðari hálfleik en ekki nóg og fór HK með þriggja marka sigur, 32-29.

Akureyri og HK virðast vera með yfirburðalið í þessum aldursflokki en þessi sömu lið áttust einnig við í bikarúrslitaleiknum fyrr í vetur og þar fór HK einnig með sigur af hólmi.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson