Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Auður yfirgefur Akureyri



12. maí 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Auður Ómarsdóttir fer til Fylkis

Leikstjórnandinn snjalli, Auður Ómarsdóttir, í kvennaliði Akureyrar Handboltafélags hefur skrifað undir samning við lið Fylkis. Það er ljóst að stórt skarð hefur verið höggvið í kvennalið Akureyrar við þessi tíðindi en Auður hefur skipað ansi stórt hlutverk í kvennaboltanum í bænum í þó nokkur ár þrátt fyrir ungan aldur.

Auður sem er 20 ára gömul hefur leikið með unglingalandsliðum Íslands ásamt því að hafa leikið í meistaraflokki KA/Þórs og Akureyrar Handboltafélags undanfarin ár.

Ljóst er að stórleikur Auðar gegn Fylki í vetur hefur kveikt áhuga Fylkis á henni en Auður gerði 10 mörk í 32-29 tapleik Akureyrar.

Heimasíðan óskar Auði velfarnaðar með Fylkisliðinu og þakkar henni fyrir sinn tíma í handboltanum fyrir norðan.


Auður segist munu sakna KA-Heimilisins sem og liðsfélaga sinna
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson