Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Undirbúningur næsta tímabils að hefjast

22. júní 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Ný stjórn Akureyrar Handboltafélags

Ný stjórn hjá Akureyri Handboltafélag var mynduð í síðustu viku og er þegar hafinn undirbúningur að næsta keppnistímabili. Stjórnina skipa: Atli Ragnarsson, formaður, Gestur Einarsson varaformaður, Alex Björn Bülow gjaldkeri og meðstjórnendur eru Ingólfur Samúelsson og Stefán Jóhannsson. Þá munu formenn KA og Þórs þeir Stefán Gunnlaugsson og Sigfús Helgason starfa með stjórninni auk þess sem Hannes Karlsson og Örn Óskarsson úr fyrri stjórn munu starfa áfram að fjáröflun.

Stjórnin hefur þegar tekið til starfa og eru hafnar viðræður við þjálfara og leikmenn varðandi næsta leiktímabil. Þær ganga vel og eru allir staðráðnir í því að leggjast á eitt til að tryggja áframhaldandi tilveru handboltans á Akureyri.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson