Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Undirbúningur fyrir N1 mótið er í fullum gangi

10. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Tveir æfingaleikir syðra um helgina

Leikmenn Akureyrar Handboltafélags halda suður yfir heiðar og leika þar tvo æfingaleiki um helgina. Á föstudaginn verður leikið við Kópavogspiltana í HK og á laugardaginn gegn Víkingum sem komu upp úr 1. deildinni síðastliðið vor.

Þetta verða væntanlega síðustu æfingaleikir liðisins áður en alvaran tekur við en fyrsti leikur Akureyrar Handboltafélags í N1-deildinni verður heimaleikur gegn FH 18. september.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson