Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það var létt yfir stjórnarmönnum í dag

11. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri Handboltafélag með skrifstofuaðstöðu í Höllinni

Dagurinn í dag, 11. september 2008 var merkilegur í sögu Akureyrar Handboltafélgas sem nú er að hefja sitt þriðja starfsár. Félagið fékk sem sé í fyrsta sinn eigin skrifstofuaðstöðu sem er gríðarlega mikilvægt því bara það að hafa samastað fyrir fundi og vinnuaðstöðu fyrir alla þá pappírsvinnu sem felst í því að halda úti liði í úrvalsdeild auðveldar starfið ótrúlega mikið.

Skrifstofan er á annarri hæð í Íþróttahöllinni, rétt við veitingasöluna. Næstu daga verður unnið að því að standsetja skrifstofuna, koma fyrir tækjum og tólum auk þess að koma upp geymsluaðstöðu fyrir skjöl og ýmsan búnað sem félagið á og þarf að hafa til taks við æfingar og leiki.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson