 Spá er ekki raunveruleikinn, sá hlær best sem síðast hlær!
| | 17. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarNý spá um deildina - Arnar Pétursson hefur trú á AkureyriÞjálfarar og fyrirliðar liðanna í N1-deild karla komu saman á fundi í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Íslands í gær. Rúnar Sigtryggsson og Jónatan Magnússon flugu suður til að taka þátt í fundinum og herma heimildir að gengið hafi á ýmsu í fluginu enda veruleg ókyrrð í lofti. Auk þeirra var Árni Sigtryggsson okkar maður á fundinum.
Eitt helsta tilefni fundarins var að opinbera spá fyrirliðanna og þjálfaranna um gengi liðanna í vetur. Liðunum voru gefin stig og var niðurstaða þeirra sem hér segir:
Haukar (228 stig) Valur, (203 stig) HK, (195 stig) Fram, (174 stig) Stjarnan, (143 stig) Akureyri, (113 stig) FH, (110 stig) Víkingur, (82 stig)
Samkvæmt spánni verða Haukar Íslandsmeistarar í ár en athygli vekur að Akureyri er spáð betur hér heldur en í spá spekinganna á sport.is sem töldu að Akureyri myndi hafna í neðsta sætinu.
Það er hins vegar ljóst af niðurstöðu spárinnar að menn telja Akureyri og FH vera á svipuðu róli og því ljóst að leikur þessara liða á morgun er gríðarlega mikilvægur. Þess vegna er enn meiri ástæða til að hvetja alla velunnara til að mæta í Íþróttahöllina og standa með sínum mönnum.
Á vefnum handbolti.is er Arnar Pétursson, fyrirliði Haukaliðsins spurður hvort hann telji eitthvert lið eiga eftir að koma á óvart í vetur? Svar Arnars var svohljóðandi:
"Já ég held að Akureyri eigi eftir að koma á óvart. Hef meiri trú á þeim en margur annar. Ég á einnig von á því að FH komi á óvart. Það er fullt af flottum handboltamönnum í hópnum hjá þeim þó sumir séu kannski fullþungir um þessar mundir." |