 Frábær stemming fyrir leikinn í kvöld
| | 18. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri - FH: Fyrst og fremst tilhlökkun í gangiRúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, er hér í spjalli við vefinn handbolti.is um leikinn í kvöld gegn FH og það jákvæða og ferska starf sem nú er unnið í kringum m.a. stuðningsmenn fyrir Norðan.
Nú er ykkar fyrsti heimaleikur í kvöld, býstu við góðri stemmingu í Höllinni? Já, ég á von á að það verði góðmennt í kvöld.
Verður þú með númer í kvöld? 13
Hvernig líst þér á að spila með litla bróður? Frábært, ég er búinn að bíða eftir þessu lengi og þetta er endapunkturinn á ferilinn.
Er þetta ekki ykkar fyrsti leikur saman? Já.
Hvað hafið þið Norðanmenn verið að gera til að fá fólk til að koma á leikina í vetur? Það er búið að stofna stuðningsmannaklúbb. Síðan fá allir iðkenndur yngri flokka í handboltanum á Akureyri svarta boli í samstarfi við Kaupþing, en bolirnir verða tilbúnir fyrir næsta heimaleik. Ætlunin er að færa liðið nær yngri iðkenndunum og fá þá á alla leiki vetrarins og mynda svartan her á heimaleikjunum. Svo erum við t.d. með húsband sem mun spila í kringum leikinn í kvöld og svo erum við með ýmislegt á prjónunum.
Nú eruð þið með stuðningsklúbb sem þið m.a. bjóðið upp á súpu fyrir leik, er þetta nokkuð öflugur hópur af fólki í klúbbnum? Það var byrjað að selja í klúbbinn fyrir 9 dögum og það voru komnir yfir 100 manns í klúbbinn í gærkvöldi (miðvikudagskvöld). Ásamt matnum, þá er ætlunin að vera með leiki í boði úr Evrópuhandboltanum eða síðasta útileik á breiðtjaldi. Þjálfari mund c.a. 15 mín. Fyrir leik tala við klúbbinn um komandi leik og í hálfleik mun aðstoðarmaður koma snöggt upp og halda stutta tölu þar sem farið verður yfir fyrri hálfleikinn og hvað verður gert í seinni hálfleiknum, áður en hann fer inn í klefa. Þannig að klúbbmeðlimir verða „nær" leiknum en ella. Einnig munu leikmenn koma í klúbbinn strax að leik loknum og ræða leikinn. Svo verður ýmislegt annað gert, sem gerir það vonandi enn meira spennandi að vera í Stuðningsmannaklúbbi AHF.
Er góð stemming fyrir handboltanum á Akureyri um þessar mundir? Já, eins og um allt land. Fólk í kringum liðið hefur verið mjög jákvætt við leikmenn og aðstandendur liðsins nú á síðustu vikum og sýnt okkur stuðning, sem ekki hefur verið kannski verið mikið af fyrstu 2 ár félagsins. Fólk er að átta sig á því að þetta er lið bæjarins og er hætt að flokka liðið niður í fortíðareiningar eða eftir persónum, enda á liðið að vera sterkara en einstaklingarnir. En núna eru einhvernveginn allir til í verkefnið þó að fyrirfram sé vitað að þetta verður erfið brekka, þá eru allir af vilja gerðir til þess að taka á því og klífa fjallið.
Ertu bjartur fyrir ykkar hönd fyrir vetrinum? Það er fyrst og fremst tilhlökkun í gangi. Við erum e.t.v. ekki með sömu nöfn og önnur lið í sínum 14 manna hópum, en það er betra að hafa 7 leikmenn sem vilja en 14 sem þurfa. Árangur okkar mun ráðast af okkur sjálfum og hvernig við umgöngumst mótbyr og meðbyr.
Viðtalið er fengið af handbolti.is. |