 Það þarf greinilega að fjölga sætum í Höllinni fyrir næsta leik
| | 3. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarOg þá var kátt í Höllinni - Áhorfendur í aðalhlutverkiÞað var rafmögnuð stemming í Íþróttahöllinni í gærkvöldi þegar Stjarnan kom í heimsókn. Hinir frábæru stuðningsmenn Akureyrar létu ekki sitt eftir liggja, fylltu stúkuna og hvöttu sína menn dyggilega áfram. Leikmenn Akureyrar þökkuðu fyrir stuðninginn með flottri frammistöðu og með sameiginlegu átaki áhorfenda og leikmanna lyktaði háspennuleik með sanngjörnum sigri heimamanna 22-19.
Þórir Tryggvason ljósmyndari fangaði stemminguna á pöllunum og hér er hægt að skoða myndasyrpu sem sýnir gleðina, spennuna og kraftinn sem skein af hverju andliti. Nú bíðum við spennt eftir næsta leik til að halda stemmingunni áfram.
Smellið hér til að skoða myndirnar af áhorfendum.
Smellið hér til að skoða myndir frá leiknum. |