Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Ţađ eru ljúffengar veitingar í bođi fyrir stuđningsmannaklúbbinn

8. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Líf og fjör í stuđningsmannaherberginu - fleiri myndir

Ţađ er mikil stemming í stuđningsmannaherbergi Akureyrar í kringum heimaleikina. Hálftíma fyrir leik er bođiđ upp á létta máltíđ sem kemur sér vel ţar sem leikirnir eru einmitt á kvöldmatartíma. Rúnar Sigtryggsson ţjálfari kemur í létt spjall ţar sem hann fer yfir leikmannahópinn, vegur styrkleika og veikleika andstćđinganna og hvernig hann hyggst leggja upp leik sinna manna.


Rúnar útskýrir varnartaktíkina gegn Stjörnunni í síđasta leik

Í hálfleik er bođiđ upp á kaffihlađborđ og ţá kemur Stefán Árnason ađstođarţjálfari upp í herbergiđ og fer yfir gang mála í fyrri hálfleik og hvađa áherslur verđa lagđar í ţeim seinni.

Ađ leik loknum koma leikmenn og ţjálfarar og rabba viđ stuđningsmenn um leikinn og nćra sig á ţeim veitingum sem eftir eru. Ţá er hćgt ađ fylgjast međ myndum frá einhverjum gćđahandboltaleik, síđast var sýndur leikur Íslands og Ţýskalands frá ţví á Evrópumótinu 2002.

Ţađ hefur skapast gríđarlega skemmtileg stemming í stuđningsmannaherberginu og viljum viđ hvetja alla sem hafa gengiđ í klúbbinn til ađ kíkja inn á fimmtudaginn og minnum á ađ enn er hćgt ađ ganga í klúbbinn.

Hér á eftir fara nokkrar hálfleiksmyndir úr herberginu ţegar Akureyri lék gegn Stjörnunni.







Myndasyrpa eftir leikinn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson