 Samúel lætur ekki deigan síga í listinni
| | 15. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarNý útgáfa af merki Akureyri HandboltafélagsÍ dag birtum við endanlega útfærslu af merki Akureyrar Handboltafélags sem snillingurinn Samúel Jóhannsson hannaði. Í þessari nýju útfærslu breytti Samúel litunum lítillega, þannig er örninn ekki lengur skjannahvítur og einnig er boltinn orðinn gullitaður til marks um að Akureyrarliðið ætlar sér stóra hluti og vinna titla.
Merkið er til í þremur útfærslum sem verða notaðar á mismunandi vegu. Við væntum þess að fljótlega verði hægt að fá merkið á borðfána, bílmerki, barmmerki o.s.frv.
Samúel er eins og áður hefur komið fram einn dyggasti stuðningsmaður Akureyrar liðsins og heldur uppi stemmingu í stuðningsmannaherberginu á heimaleikjum liðsins. Honum er svo sannarlega margt til lista lagt, hér á árum áður var hann markvörður ÍBA liðsins og Þórs í knattspyrnu. Samúel starfar sem forstöðumaður íþróttamiðstöðvar Glerárskóla en sinnir jafnframt myndlistinni þótt hann kjósi að kalla sig myndverkamann í hógværð sinni.
 |