 Alltaf gaman að skoða gamlar myndir
| | 31. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarGullmoli úr fornminjasafninuAlltaf af og til rekst maður á ýmsa gullmola þegar verið er að taka til í gömlu dóti. Á árunum 1993 og 1994 gaf HSÍ út myndaspjöld af leikmönnum sem þá voru í eldlínunni og gengu þær undir nafninu Mark-myndir. Auk myndar af viðkomandi leikmanni voru upplýsingar um fæðingardag, hæð og þyngd, landsleikjafjölda og áhugamál. Okkur hafa áskotnast tvö slík spjöld og birtum við annað þeirra í dag.
Gullmoli dagsins er frá 1993 og er enginn annar en þjálfari Akureyrar Handboltafélags, Rúnar Sigtryggsson. Á þessum tíma var Rúnar í herbúðum Vals og samkvæmt upplýsingum á spjaldinu var hann þá 193 cm á hæð og 88 kg á þyngd, hafði leikið 2 landsleiki, 10 leiki með U21-landsliðinu og 3 leiki með U18 landsliðinu. Þá gefur Rúnar upp að helstu áhugamál hans séu íþróttir og ferðalög. Hefur hann eitthvað breyst á þessum 15 árum? Þeir sem luma á skemmtilegu myndefni sem tengist Akureyri Handboltafélagi á einhvern hátt ættu endilega að hafa samband og við reynum að koma því á framfæri. |