Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Í þetta sinn var gramsað í myndasafni Moggans

11. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Gullmoli úr fornminjasafninu

Það er kominn tími til að draga fram enn einn gullmola úr safninu. Í dag grófum við upp mynd sem birtist í Morgunblaðinu 3. október 2001 en þar var fjallað um leik Gróttu/KR gegn Þór sem væntanlega fór fram daginn áður. Þetta árið lék Hafþór Einarsson, núverandi markvörður Akureyrar Handboltafélags með Þór.

Í myndatexta Morgunblaðsins sagði: Hafþór Einarsson, markvörður Þórs frá Akureyri, ver hér fimlega skot Magnúsar A Magnússonar fyrirliða Gróttu/KR en Aigars Lazdins og Rene Smed fylgjast spenntir með

Aigars lék sem kunnugt er með Akureyri Handboltafélagi fyrsta tímabilið. Magnús leikmaður Gróttu/KR lék reyndar eitt tímabil með KA þannig að allir þessir fjórir hafa komið við sögu handboltans á Akureyri.

Þrátt fyrir þessa snilldartakta Hafþórs tapaði Þór leiknum 23-21.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson