 Jónatan er klár í leikinn í dag
| | 19. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Akureyri - Haukar í beinni textalýsinguÞá er komið að leikdegi hjá Akureyri Handboltafélagi. Það verður mikið um dýrðir í Íþróttahöllinni í kvöld þegar Akureyri tekur á móti Íslandsmeisturum Hauka. Karlakór Akureyrar - Geysir hitar upp á kaffiteríunni, kakó og ýmsar veitingar verða í boði fyrir leik og það sem mestu máli skiptir, hörkuleikur tveggja frábærra liða sem bæði munu leggja allt í sölurnar.
Leikurinn sjálfur hefst klukkan 19:30 og að sjálfsögðu ætlum við að bjóða stuðningsmönnum sem ekki eiga heimangegnt á leikinn upp á beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni og hefst hún rétt fyrir leik.
Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.
Smellið hér til að opna Beina Lýsingu
Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist sjálfvirkt á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:30 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með. |