Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Enn og aftur - frábærustu áhorfendur landsins

24. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Áhorfendur og fánaberar á Haukaleiknum - myndasyrpa

Þrátt fyrir að úrslit Haukaleiksins á miðvikudaginn hafi ekki verið þau sem við óskuðum okkur þá er sérstök ástæða til að óska stuðningsmönnum liðsins til hamingju með sína frammistöðu. Aðsókn áhorfenda sló nefnilega öll met að þessu sinni og getum við stolt sagt að fjöldi áhorfenda hafi verið vel á annað þúsund!

Enda var stúkan orðin full hálftíma fyrir leik og fjöldi áhorfenda var niður á gólfi Íþróttahallarinnar. Nú er verið að ræða það til hvaða ráðstafana þurfi að grípa til fyrir næsta leik sem verður í janúar.

Þórir Tryggvason var að senda okkur myndir frá leiknum þar sem áhorfendur og fánaberar eru á aðalhlutverkum.


Smelltu hér til að skoða myndirnar

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson