 Jónatan fór fyrir sínum mönnum í dag Flóki var seigur í markinu

| | 11. desember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarTap gegn HK í hörkuleik - skondin staða í N1 deildinniÞað var hart tekist á í Digranesinu í kvöld þegar Akureyri mætti til leiks gegn HK. Strákarnir mættu ákveðnir til leiks staðráðnir í að rífa sig upp eftir slæm töp í síðustu tveim leikjum. Það voru þó heimamenn sem byrjuðu betur og komust í 3-0 og það var ekki fyrr en eftir fimm mínútna leik sem Jónatan braut ísinn með fyrsta marki Akureyrar. Leikur okkar manna var alls ekki nægilega góður fyrstu tíu mínútur leiksins, hvorki í vörn eða sókn og Hafþór fann sig ekki í markinu. Staðan orðin 8-4 fyrir HK.
Vörnin fór þó skánandi og Hörður Flóki kom í markið og tók nokkra fína bolta en þó hélt HK þessari 3-4 marka forystu allt þar til að 25 mínútur voru eftir að munurinn var kominn niður í tvö mörk 11-9. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks fóru hins vegar nokkur afbragðs færi forgörðum og HK fór með fjögurra marka forystu í hálfleik 14-10.
Sveinbjörn Pétursson í marki HK reyndist okkar mönnum erfiður, enda gjörþekkir hann sína gömlu félaga. Þá átti Akureyringurinn Ragnar Snær Njálsson góða endurkomu í HK liðið eftir langvarandi meiðsli og skoraði þrjú mörk á okkur.
Upphaf seinni hálfleiks var ekki eins og menn óskuðu sér, HK skoraði fyrstu tvö mörkin og náði þar með sex marka forystu 16-10 og útlitið dökkt. En okkar menn sýndu mikinn karakter og með frábærum kafla tókst þeim að jafna leikinn í 20-20 þegar tæpar níu mínútur voru eftir af leiknum.
En því miður tókst ekki að halda þessum fína kafla áfram og HK reyndust sterkari á lokasprettinum og sigruðu 25-21 þar sem Akureyri skoraði ekki mark á síðustu sjö mínútum leiksins.
Þrátt fyrir þetta tap voru margvísleg batamerki á liðinu frá síðustu tveim leikjum. Jónatan var yfirburðamaður í liðinu í dag, skoraði tíu mörk og mataði Hörð Fannar og Þorvald vel á línunni sem skilaði ófáum mörkum og vítaköstum.
Mörk Akureyrar: Jónatan 10 (5 víti), Hreinn og Hörður Fannar 3 hvor, Andri Snær og Anton 2 hvor og Þorvaldur 1.
Hafþór byrjaði í markinu fyrstu fjórtán mínúturnar en fann sig ekki og varði einungis eitt skot á þeim tíma. Hörður Flóki kom þá inná og varði alveg þokkalega, a.m.k. tíu skot og þar af eitt vítakast.
Oddur virðist ekki ná sér á strik þessa dagana en vonandi er það eitthvað sem hrekkur í samt lag í næsta leik. Einnig er það ljóst að liðið saknar Árna Sigtryggssonar en þess er vænst að hann verði klár í næsta deildarleik sem er reyndar ekki fyrr en 22. janúar.
Hér er hægt að skoða gang leiksins
Eftir leiki dagsins er staðan í N1 deildinni ákaflega athyglisverð, Valur er á toppnum með 15 stig en síðan koma fimm lið öll með 12 stig. Til að raða þeim í sæti má segja að þá sé stillt upp móti þar sem einungis þeirra leikir eru skoðaðir. Þá kemur í ljós að HK hefur fengið 9 stig út úr leikjum þessara fimm liða, Akureyri, Haukar og Fram hafa 6 stig og FH 5 stig. Því þarf að líta á innbyrðis úrslit Akureyri, Hauka og Fram og út úr þeim hafa Haukar 4 stig en Akureyri og Fram 2 stig en þar sem Akureyri sigraði Fram í þeirra leik raðast Akureyri ofar en Fram sem stendur.
Þess ber þó að geta að Fram á eftir að spila tvo leiki, gegn Stjörnunni og Víkingi og Haukar eiga eftir leik gegn Stjörnunni.
Staðan í deildinni í dag er því sem hér segir: | Nr. | Félag | Leikir | U | J | T | Mörk | Hlutfall | Stig | | - | | 1. | Valur | 11 | 6 | 3 | 2 | 307 : 263 | 44 | 15 | : | 7 | | 2. | HK | 11 | 5 | 2 | 4 | 292 : 299 | -7 | 12 | : | 10 | | 3. | Haukar | 10 | 6 | 0 | 4 | 288 : 260 | 28 | 12 | : | 8 | | 4. | Akureyri | 11 | 6 | 0 | 5 | 288 : 299 | -11 | 12 | : | 10 | | 5. | Fram | 9 | 5 | 2 | 2 | 254 : 245 | 9 | 12 | : | 6 | | 6. | FH | 11 | 5 | 2 | 4 | 322 : 322 | 0 | 12 | : | 10 | | 7. | Stjarnan | 9 | 2 | 2 | 5 | 225 : 237 | -12 | 6 | : | 12 | | 8. | Víkingur | 10 | 0 | 1 | 9 | 257 : 308 | -51 | 1 | : | 19 | Ef Fram fær ekkert stig úr þessum tveim leikjum heldur Akureyri fjórða sætinu en falla annars niður í það fimmta. Athyglisverð mynd úr leiknum, hér er Arnar Sæþórsson að brjótast í gegnum Akureyrarvörnina, Ragnar Snær Njálsson fylgist með sínum manni en báðir léku þeir með KA á sínum tíma þannig að hér eru eintómir norðanmenn á ferðinni. (mynd: mbl.is)
 Jónatan sækir að HK vörninni. (mynd: mbl)
|