 Jón Þór og 2. flokks strákarnir fá verðugt verkefni í dag
| | 18. desember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Heimaleikur gegn Fram klukkan 18:15 í dagStrákarnir í öðrum flokki mæta Fram í Íslandsmótinu í dag, fimmtudag og hefst leikurinn klukkan 18:15 í Íþróttahúsi Síðuskóla. Akureyri stendur vel að vígi á toppi deildarinnar með 16 stig eftir átta leiki en Fram er um miðja deild með 8 stig eftir níu leiki.
Akureyri er með magnað lið í 2. flokki og með mjög góða breidd í hópnum og ef liðið nær sínum vanalega leik eru þeir til alls líklegir. Það sást hinsvegar í síðasta leik að liðið hefur ekki efni á neinu kæruleysi og lenti liðið í töluverðu basli við að innbyrða sigur gegn Stjörnunni en það hafðist þó að lokum. Það er allavega ljóst að enginn leikur er unninn fyrirfram og því verða menn að koma í leikinn af fullum krafti og sýna stuðningsmönnum liðsins að það er engin tilviljun að liðið er eitt á toppi deildarinniar og komið í 8-liða úrslit bikarkeppninnar.
Við hvetjum alla áhugamenn um handbolta til að mæta í Síðuskóla í dag og styðja við bakið á strákunum. Þessi sömu lið, Fram og Akureyri munu síðan mætast í bikarkeppninni en sá leikur verður á heimavelli Fram og hefur ekki verið tímasettur ennþá. |