Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Óskum Heidda og Antoni til hamingju með valið



29. desember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Heiðar Þór og Anton valdir í U-20 landsliðshópinn

Í dag var tilkynntur æfingahópur U-20 ára landsliðs karla en hópurinn kemur saman til æfinga í byrjun janúar. Akureyri Handboltafélag á tvo fulltrúa í hópnum, þá Anton Rúnarsson og Heiðar Þór Aðalsteinsson. Fyrsta æfing liðsins er í Laugardalshöll, föstudaginn 2.janúar nk. kl.17.00. en það er Heimir Ríkharðsson sem þjálfar liðið. Auk þeirra Antons og Heiðars eru tveir fyrrum leikmenn Akureyrar í hópnum en það eru þeir Ásbjörn Friðriksson og Sveinbjörn Pétursson.

Annars er hópurinn þannig skipaður:
Anton Rúnarsson, Akureyri
Aron Rafn Eðvarðsson, Haukar
Ásbjörn Friðriksson, FH
Bjarki Már Gunnarsson, HK
Heiðar Þór Aðalsteinsson, Akureyri
Hlynur Már Magnússon, HK
Hjálmar Arnarsson, Víkingur
Hörður Másson, Selfoss
Ingvar Guðmundsson, Valur
Magnús Magnússon, HK
Orri Freyr Gíslason, Valur
Óttar Filipp Pétursson, Víkingur
Ragnar Jóhannsson, Selfoss
Sigurjón Björnsson, ÍR
Sigurður Ágústsson, FH
Sveinbjörn Pétursson, HK
Þórður Guðmundsson, Haukar
Þröstur Bjarkason, HSG Mülheim-Kärlich-Bassenheim
Þröstur Þráinsson, Haukar
Þrándur Gíslason, UMFA
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson