Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jón Þór og félagar fá frí um helgina

6. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur karla: Laugardagsleiknum gegn Val frestað

Leik Akureyrar og Vals sem vera átti á laugardaginn hefur verið frestað um mánuð að ósk Valsmanna. Leikurinn hefur verið settur á laugardaginn 7. mars í staðinn. Þetta þýðir að næsti leikur 2. flokks verður þriðjudagskvöldið 17. febrúar en þá mæta þeir Selfyssingum í 4-liða úrslitum bikarkeppninnar en sá leikur verður í Síðuskólahúsinu og hefst klukkan 17:30.

Liðin hafa mæst einu sinni í vetur en það var á Selfossi og lauk þeim leik með eins marks sigri Akureyrar eftir mikinn darraðardans þannig að búast má við að Selfyssingar mæti banhungraðir og dýrvitlausir hingað á þriðjudaginn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson