 Valsarar hafa verið erfiðir heim að sækja í vetur
| | 26. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarÚtileikur gegn Val á sunnudaginnN1 deildin byrjar að rúlla aftur um helgina en á sunnudaginn klukkan 16:00 verður leikin næstsíðasta umferðin og fara allir leikirnir fram á sama tíma. Akureyri fær verðugt verkefni en liðið fer í Vodafone höllina og leikur gegn heimamönnum í Val. Heimavöllurinn hefur reynst Val dýrmætur en þeir hafa sigrað í öllum heimaleikjum tímabilsins enda með frábært lið.
Liðin hafa mæst tvisvar í vetur, fyrri leikinn vann Akureyri hér í Íþróttahöllinni en Valur náði fram hefndum á heimavelli. Það er því verðugt markmið fyrir Akureyrarliðið að verða fyrsta liðið til að leggja Val í Vodafone höllinni og ekki spillir að í boði eru dýrmæt stig til að gulltryggja sig í deildinni.
Það eru nokkrir góðkunningjar okkar Akureyringa í Valsliðinu og skal þar fyrstan telja Heimi Örn Árnason sem var valinn leikmaður deildarinnar tímabilið 2007-2008. Þar eru einnig kapparnir Baldvin Þorsteinsson og Arnór Þór Gunnarsson sem allir eru burðarásar í Valsliðinu sem enn eiga von um deildarmeistaratitilinn.  Í síðasta leik var Rúnar Sigtryggsson í banni en hann verður klár í leikinn á sunnudaginn eins og allt liðið, í liði Vals mun Elfar Friðriksson hins vegar sitja í áhorfendastúkunni en fékk eins leiks bann í síðustu umferð. Hreinn tekur hraustlega á Heimi Árnasyni í síðasta leik liðanna. Eins og áður segir er þetta næstsíðasta umferð deildarinnar sem lýkur með heimaleik gegn Fram í Íþróttahöllinni sunnudaginn 5. apríl klukkan 16:00. |