 Anton gulltryggđi deildarmeistaratitilinn úr aukakasti er leiktíminn var liđinn
| | 28. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Deildarmeistarar eftir ótrúlegan sigur á ÍRŢađ var ekki laust viđ dramatík í Breiđholtinu í dag ţegar ÍR tók á móti Akureyri í Austurberginu. Međ sigri gat Akureyri gulltryggt deildarmeistaratitilinn en baráttuglađir ÍR-ingar voru ekkert á ţeim buxunum ađ láta Akureyrarstrákana fagna titli á ţeirra heimavelli.
ÍR mćttu gríđarvel stemmdir og náđu mest sjö marka forystu í fyrri hálfleik en Akureyri náđi ađ klóra í bakkann en ÍR hélt öruggri ţriggja marka forystu í hálfleik, 23-20.
Seinni hálfleikur spilađist á svipađan hátt, ÍR mun sterkari ađilinn og náđu mest sex marka forystu en međ seiglu tókst Akureyrarliđinu ađ saxa niđur forskotiđ og náđu ađ jafna í lokin og áttu síđustu sóknina í leiknum, henni lauk međ ţví ađ Akureyri fékk aukakast í sömu mund og flautađ var til leiksloka.
Anton Rúnarsson tók aukakastiđ og ađ sögn sjónarvotta minnti ţađ helst á sögufrćgt aukakast Guđjóns Vals Sigurđssonar í KA heimilinu um áriđ sem tryggđi KA ađra framlengingu gegn Aftureldingu og síđar eins marks sigur 29-28 í apríl 2001.
Anton skorađi sem sé úr aukakastinu og tryggđi Akureyri sigur í leiknum 35-36 og ţar međ deildarmeistaratitilinn, fyrsta titilinn í sögu félagsins og óskum viđ strákunum til hamingju međ frábćran áfanga ţrátt fyrir ađ einni umferđ sé enn ólokiđ!
Reyndar má segja ađ heppnin hafi veriđ međ strákunum í dag en hún er jú oft hliđholl ţeim bestu og viđ sláum ekki hendinni á móti henni á svona stundum.
Stađan í deildinni er nú sem hér segir:
| Nr. | Félag | Leik | U | J | T | Mörk | Nett | Stig | | 1. | Akureyri | 21 | 17 | 1 | 3 | 702:594 | 108 | 35 | | 2. | FH | 20 | 15 | 0 | 5 | 674:538 | 136 | 30 | | 3. | Selfoss | 19 | 13 | 1 | 5 | 633:540 | 93 | 27 | | 4. | Víkingur | 20 | 12 | 2 | 6 | 589:516 | 73 | 26 | | 5. | Haukar | 20 | 9 | 5 | 6 | 558:526 | 32 | 23 | | 6. | Valur | 19 | 8 | 3 | 8 | 556:564 | -8 | 19 | | 7. | ÍR | 20 | 9 | 1 | 10 | 590:577 | 13 | 19 | | 8. | Afturelding | 18 | 8 | 1 | 9 | 491:522 | -31 | 17 | | 9. | HK | 18 | 7 | 1 | 10 | 563:537 | 26 | 15 | | 10. | Fram | 20 | 6 | 0 | 14 | 582:638 | -56 | 12 | | 11. | Stjarnan | 19 | 5 | 1 | 13 | 495:543 | -48 | 11 | | 12. | Fjölnir | 20 | 0 | 0 | 20 | 413:751 | -338 | 0 |

 Hér er sjónarhorn Guđjóns Vals í markinu frćga en boltinn hafnađi í fjarstönginni og inn - ótrúlegt!
|