 Hörður Flóki fór á kostum í markinu í dag

| | 29. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarLukkan var með Valsmönnum í dagÞað má segja að lukkudísirnar hafi verið á bandi Valsmanna í dag þegar þeir tóku á móti Akureyri. Leikmenn Akureyrar komu mjög ákveðnir til leiks og með fantagóðri vörn og Hörð Flóka í fínu formi í markinu tóku leikmenn Akureyrar frumkvæðið í leiknum. Reyndar var jafnt á öllum tölum upp í 6-6 en þá náði Akureyri tveggja marka forystu 6-8.
Í þessari stöðu tók Valur leikhlé og það hafði greinilega góð áhrif á liðið því þeir skoruðu næstu fjögur mörk og staðan skyndilega orðin 10-8 og útlitið ekki gott. En þá kom að þætti Björns Óla Guðmundssonar sem fór hamförum á næstu mínútum, skoraði þrjú fín mörk og átti að auki stoðsendingu á Þorvald sem gaf mark þannig að Akureyri leiddi með einu marki, 11-12 í hálfleik.
Forystan var fyllilega verðskulduð og ef ekki hefði komið til dapur sóknarkafli frá 16-25 mínútu hefði forystan átt að vera meiri því vörn og markvarsla var til fyrirmyndar. Þannig varði Hörður Flóki 14 skot í hálfleiknum og þar af bæði vítaköstin sem Valur fékk.
Valur náði að jafna metin 12-12 í upphafi seinni hálfleiks en þá kom flottur kafli hjá Akureyri sem náði mest fjögurra marka forystu 13-17, enn var það frábær vörn og markvarsla sem skóp þessa stöðu. Í sókninni hélt Björn Óli uppteknum hætti og skoraði tvo glæsimörk til viðbótar.
En Valsmenn þéttu vörnina hjá sér og við það varð sóknarleikur Akureyrar vandræðalegur og sömuleiðis slökuðu menn á í vörninni þannig að þegar seinni hálfleikur var rúmlega hálfnaður náðu Valsmenn að jafna í 19-19. Á næstu mínútum tók Árni Sigtryggsson til sinna ráða í sókninni og sá til þess að Akureyri hélt enn frumkvæðinu en Valur fylgdi ávallt í kjölfarið og náðu stöðugt að jafna, þannig var jafnt á öllum tölum upp í 24-24 og rúmar fjórar mínútur til leiksloka.
Þessar síðustu mínútur gekk því miður ekkert í sóknarleiknum, Árni var tekinn úr umferð og það voru Valsmenn sem náðu að skora tvö mörk til viðbótar og unnu því leikinn 26-24. Þannig að enn eina ferðina tapaðist spennuleikur á lokasprettinum.
Hörður Flóki átti stórleik í markinu, sérstaklega þó í fyrri hálfleik og í upphafi þess seinni. Þannig telst okkur til að hann hafi varið samtals 20 skot, þar af tvö vítaköst. Árni Sigtryggsson kom sterkur inn í seinni hálfleik og eins og áður er getið átti Björn Óli magnaðan leik í dag.
Leikurinn var í beinni lýsingu hér á síðunni og er þar hægt að sjá hvernig leikurinn þróaðist. Mörk Akureyrar skiptust þannig: Árni 8 (1 víti), Björn Óli 6, Hörður Fannar 3, Oddur 3, Heiðar 2 og Þorvaldur 2.
Á sama tíma sigraði Stjarnan Víkinga eins og við mátti búast og því kemur ekkert annað til greina en sigur í síðasta leik liðsins gegn Fram á sunnudaginn kemur til að gulltryggja deildarsætið á okkar eigin forsendu en þurfa ekki að treysta á að Haukar vinni Stjörnuna í lokaleik þeirra.
Staðan í deildarkeppni karla fyrir lokaumferðina er þannig: | Nr. | Félag | Leikir | U | J | T | Mörk | Hlutfall | Stig | | - | | 1. | Haukar | 20 | 15 | 1 | 4 | 568 : 489 | 79 | 31 | : | 9 | | 2. | Valur | 20 | 13 | 3 | 4 | 559 : 476 | 83 | 29 | : | 11 | | 3. | HK | 20 | 9 | 5 | 6 | 531 : 534 | -3 | 23 | : | 17 | | 4. | Fram | 20 | 10 | 3 | 7 | 558 : 552 | 6 | 23 | : | 17 | | 5. | FH | 20 | 8 | 2 | 10 | 577 : 586 | -9 | 18 | : | 22 | | 6. | Akureyri | 20 | 7 | 2 | 11 | 510 : 545 | -35 | 16 | : | 24 | | 7. | Stjarnan | 20 | 6 | 3 | 11 | 508 : 541 | -33 | 15 | : | 25 | | 8. | Víkingur | 20 | 2 | 1 | 17 | 500 : 588 | -88 | 5 | : | 35 | |