Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Andri og félagar eru klárir í slaginn í dag

5. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Fram í beinni textalýsingu

Síðasti leikur Akureyrar í N1 deildinni er í dag klukkan 16:00 gegn Fram. Fyrir leik og í hálfleik verður sýndur urmull af ljósmyndum frá keppnistímabilinu þannig að viðstaddir fá netta upprifjun á leiktímabilinu. Einnig verðum við með nokkrar tölvur á kaffistofunni þar sem áhugasamir verða aðstoðaðir við að skrá sig fyrir staðgreiðslukort Skeljungs/Orkunnar og styrkja í leiðinni Akureyri Handboltafélag.

Að sjálfsögðu verður heimasíðan með leikinn í beinni lýsingu fyrir þá sem ekki eiga kost á að mæta á leikinn. Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist sjálfvirkt á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:00 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson