Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Anton og Heiðar skoruðu gegn Hollendingum í dag



11. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-21 árs landslið Íslands gerði jafntefli við Hollendinga

Í dag lék u-21 árs landslið Íslands fyrsta leik sinn í forkeppni um þátttöku fyrir HM sem fram fer í Hollandi. Leikið var gegn heimamönnum og lauk leiknum með jafntefli sem hlýtur að teljast vera undir væntingum okkar. Íslenska liðið náði reyndar yfirburðaforystu í upphafi leiksins, komst í 9-1 og 11-2 en síðan hrundi leikur liðsins gjörsamlega og Hollendingar komust hressilega inn í leikinn. Ísland leiddi í hálfleik 17-15 og raunar mestallan seinni hálfleikinn án þess þó að slíta sig nokkurntíma frá Hollendingunum.

Svo fór að lokum að Hollendingar komust yfir en Rúnar Kárason bjargaði stigi fyrir Ísland er hann jafnaði leikinn í 35-35 þegar 20 sekúndur voru til leiksloka og þannig lauk leiknum.

Anton Rúnarsson og Heiðar Þór Aðalsteinsson voru á meðal markaskorara í dag en við vitum ekki hvort Oddur Gretarsson var í hópnum í dag. Mörk Íslands skoruðu: Rúnar Kárason 12, Orri Freyr Gíslason 7, Ólafur Bjarki Ragnarsson 5, Anton Rúnarsson 4, Þröstur Þráinsson 3, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2, Ásbjörn Friðriksson 1 og Jóhann Karl Reynisson 1.

Sveinbjörn Pétursson varði 10 skot og Birkir Bragason 4.

Á morgun, laugardag mæta strákarnir Ungverjum og að öllu eðlilegu ætti það að vera úrslitaleikur riðilsins en Ungverjar sigruðu Breta örugglega í dag.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson