 Heimir Árnason og Guðlaugur Arnarson eru að koma í bæinn

| | 10. júní 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarTýndu synirnir snúa heim á nýTveir af dáðustu drengjum norðurlands eru loksins á heimleið, og er reiknað með komu þeirra beggja í bæinn í vikunni. Súkkulaðibrúnir og hoknir af reynslu (enda talan 30 búin að ná öðrum þeirra og nartar illa í hælana á hinum!) eftir áralanga dvöl bæði í borg óttans og erlendum höfuðborgum, munu þeir heiðra bæjarbúa með nærveru sinni í sumar svo og á fjölum íþróttahallarinnar í vetur.
Ef fólk veit ekki um hverja ræðir þá eru þeir að lesa vitlausa síðu. Ekki þarf að fara mörgum orðum um þann liðsstyrk sem fylgir þessum köppum, og gaman að segja frá því að hinn ungi, efnilegi og bráhuggulegi fyrirliði liðins er þar með dottinn niður í 5 sæti yfir elstu menn liðsins. Menn hafa þó haft það að orði að árin mörgu í útlegðinni hafi ekki gert þeim gott hvað fótboltahæfileika varðar, svo að yngri leikmenn sjá loksins fram á betri árangur gagnvart þeim eldri á komandi tímabili á því sviði.
Af liðinu er annars það að frétta að æfingar eru í fullum gangi, og mun Akureyri Handboltafélag bjóða upp á opna æfingu þriðjudaginn 16. júní á Akureyrarvelli þar sem að stuðningsmönnum gefst kostur á að horfa á leikmenn liðsins þreyta þrekpróf, jafnframt mun fara fram ástandsskoðun leikmanna.
Meira um það síðar! |