Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Margir telja þetta fjögur sterkustu liðin í deildinni í dag

21. september 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hafnarfjarðarmótið hefst á fimmtudaginn

Eins og kunnugt er tekur lið Akureyrar Handboltafélags þátt í Hafnarfjarðarmótinu 2009 sem verður leikið dagana 24.-26. september. Þetta er í annað árið í röð sem FH og Haukar standa fyrir þessu móti í meistaraflokki karla. Þátttökulið eru FH, Haukar, Valur og Akureyri.

Þetta er gríðarlega sterkt mót og magnaður þáttur í undirbúningi þessara liða fyrir sjálft Íslandsmótið. Samkvæmt ummælum þeirra félaga á sporttv.is er ekki öruggt að þeir geti sýnt frá mótinu eins og þeir gerðu svo frábærlega á Ragnarsmótinu og Reykjavíkurmótinu en við munum færa fréttir af því þegar þær berast.

Annars er leikjaskipulagið á mótinu sem hér segir:

Fimmtudagur 24. september
Kl. 18:00 FH-Valur
Kl. 20:00 Haukar-Akureyri

Föstudagur 25. september
Kl. 18:00 Haukar-Valur
Kl. 20:00 FH-Akureyri

Laugardagur 26. september
Kl. 14:00 Valur-Akureyri
Kl. 16:00 Haukar-FH

Athugið að leikirnir fara fram í Strandgötunni í Hafnarfirði
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson